Betra flæði, betri þjónusta: Toyota og Bílanaust velja EdicoVisit númerakerfi
- Jun 22
- 1 min read
Toyota og Bílanaust hafa nú innleitt nýtt númerakerfi frá Edico til að bæta þjónustu og flæði viðskiptavina.

Lausnin heldur utan um biðraðir á skilvirkan hátt og tryggir að viðskiptavinir fái skýra og skipulagða þjónustu frá upphafi til enda. Með EdicoVisit númerakerfi er auðvelt að stýra mismunandi þjónustuflokkum, forgangsraða verkefnum og veita betri yfirsýn fyrir starfsfólk.
Útkoman er einfaldari upplifun fyrir viðskiptavini og betra vinnuflæði fyrir teymi – sem skilar sér í hraðari og markvissari þjónustu.

Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá Toyota og Bílanaust taka þetta skref og leggja enn meiri áherslu á gæði þjónustunnar.
Bílanaust nýtir einnig Pricer rafræna hillumiða frá Edico, sem koma einstaklega vel út í nýrri verslun þeirra og styðja við skýra og nútímalega framsetningu vara.




