top of page

Krónan Lindir opnar á ný með fjölbreyttar lausnir frá Edico

  • 5 days ago
  • 2 min read

Krónan Lindir hefur nú opnað á ný eftir umfangsmiklar framkvæmdir og tekur á móti viðskiptavinum í glæsilegri og endurnýjaðri verslun þar sem fjölbreyttar lausnir frá Edico gegna lykilhlutverki í verslunarupplifuninni.


Í versluninni má meðal annars finna glænýja og glæsilega sjálfsafgreiðslukassa frá Edico sem voru settir upp af sérfræðingum Edico. Kassar sem þessir gera viðskiptavinum kleift að afgreiða sig hratt og örugglega á sama tíma og þeir styðja við skilvirkan rekstur verslunarinnar. Innréttingar kassanna eru frá Pan-Oston, tölvubúnaður og skjáir frá Elo og vog og skanni af nýjustu gerð frá Datalogic.



Allar vörur í versluninni eru merktar með rafrænum verðmerkingum frá Pricer og jafnframt er staðsetning vara aðgengileg í appi Krónunnar. Samspil þessara lausna auðveldar viðskiptavinum að finna vörur og tryggir að verðupplýsingar séu alltaf réttar og aðgengilegar.



Vel staðsettir verðkannar um verslunina gera viðskiptavinum einnig kleift að fá nákvæmar verðupplýsingar á augabragði, til dæmis fyrir kílóvörur, án þess að þurfa að reikna verð í huganum.



Í Krónunni Lindum eru einnig Bizerba-vogir frá Edico notaðar við kjötpökkun. Vogirnar eru búnar stórum litaskjá og sérútbúnu viðmóti sem gerir starfsfólki kleift að velja vörur fljótt og auðveldlega til vigtunar og merkingar. Edico hefur jafnframt þróað gagnatengingu milli voganna og skýjagagnagrunns Krónunnar sem tryggir að ávallt séu nýjustu og réttustu vöruupplýsingar notaðar við prentun merkimiða.



Starfsfólk Krónunnar nýtir einnig EdicoHandheld við tínslu netpantana og við öryggistékk í Skannað og skundað, sem stuðlar að aukinni skilvirkni og betri þjónustu.



Frá rafrænum verðmerkingum, verðkönnum og staðsetningu vara í appi yfir í sjálfsafgreiðslukassa, Bizerba-vogir og EdicoHandheld lausnir fyrir starfsfólk er Krónan Lindir gott dæmi um hvernig samþættar tæknilausnir geta bætt bæði upplifun viðskiptavina og skilvirkni í daglegum rekstri verslunar.



Við óskum Krónunni innilega til hamingju með þessa glæsilegu flaggskipsverslun sem er enn og aftur stórglæsileg.


 
 
bottom of page