Ný glæsileg Lindex verslun í Smáralind reiðir sig á Edico Handheld
- 4 hours ago
- 1 min read
S4S opnaði nýverið nýja og glæsilega Lindex verslun í Smáralind, sem jafnframt er sögð vera nýjasta og flottasta Lindex verslun í Evrópu. Verslunin býður upp á einstaka verslunarupplifun þar sem áhersla er lögð á nútímalega hönnun, skilvirka þjónustu og öfluga tækni sem styður við daglegan rekstur.

Eitt af þeim verkfærum sem starfsfólk S4S treystir á í sínum rekstri er Edico Handheld lausnin. Með henni hafa starfsmenn aðgang að lykilupplýsingum um vörur, birgðir og verslunarrekstur beint í lófa sér, sem einfaldar dagleg verkefni og eykur afköst.
Pétur, sem hefur starfað með lausnina um árabil, fer ekki leynt með ánægju sína með kerfið. Í reynslusögu sem hann sagði frá árið 2022 lýsti hann áhrifum lausnarinnar með eftirminnilegum hætti:
„Þetta er eitthvað það besta sem við höfum nokkurn tímann gert í retail. Við getum raunverulega þrefaldað veltuna án þess að bæta einum einasta starfsmanni við næstu árin. Þannig við erum búin að fjárfesta mjög mikið til framtíðar. Ég held að bara að Edico viti ekki hvers lags gull þetta er fyrir mig í höndunum, þetta hefur gjörbreytt lífinu okkar. Það er þess vegna sem maður er alveg til í að segja þessa reynslusögu hér, því þetta er alveg ótrúlegt.“
Orð Péturs endurspegla vel þann ávinning sem S4S hefur upplifað með notkun Edico Handheld. Lausnin hjálpar starfsfólki að vinna hraðar, sinna viðskiptavinum betur og hámarka nýtingu þeirra auðlinda sem til staðar eru.
Við hjá Edico óskum S4S og Lindex innilega til hamingju með þessa glæsilegu nýju verslun og þökkum fyrir áframhaldandi traust og gott samstarf.



