top of page

Öryggisuppfærslur á Zebra prenturum – nýjar kröfur í gildi

  • Aug 4
  • 1 min read

Frá og með 1. ágúst 2025 hafa Zebra prentarar sem seldir eru á EMEA-svæðinu (þar á meðal á Íslandi) verið uppfærðir til að uppfylla kröfur ESB um fjarskiptabúnað, EU RED. Breytingin hefur bein áhrif á uppsetningu allra nettengdra Zebra prentara.


Helstu breytingar:

  • Öruggur hamur (Protected Mode) er sjálfvirkt virkur og krefst þess að stjórnandi setji upp aðgangsorð við fyrstu uppsetningu.

  • Netþjónustur eins og FTP, HTTP og hrátt TCP eru óvirkar sjálfgefið og þarf að virkja sérstaklega.

  • Þráðlaus tenging krefst að minnsta kosti WPA2 (AES) dulkóðunar.

  • Ný og sterkari PIN-krafa fyrir framborð prentara með skjá.


Þessar stillingar haldast virkar eftir verksmiðjustillingu (factory reset), svo mikilvægt er að ganga tryggilega frá aðgangsorðum og PIN-kóðum við uppsetningu.


Zebra hefur gefið út sérstakan leiðarvísi til að einfalda uppsetningu: asr.zpc.zebra.com.


Viðskiptavinir Edico sem nota Zebra prentara eru hvattir til að hafa samband við okkur ef þörf er á aðstoð við uppsetningu eða frekari upplýsingum.



 
 
bottom of page