Raftækjalagerinn nýtir Edico Handheld í afhendingarferlinu
- 1 day ago
- 1 min read
Það er alltaf gaman að heimsækja viðskiptavini okkar og sjá hvernig lausnirnar okkar eru nýttar í daglegum rekstri. Nýlega kíktum við í heimsókn til Raftækjalagersins, þar sem Edico Handheld er hluti af afhendingarferlinu þegar viðskiptavinir sækja pantanir sínar.

Þegar viðskiptavinur mætir til að sækja pöntun skannar hann strikamerkið sem hann fær sent og afhendingarferlið fer strax af stað. Á skjám í móttökunni er síðan hægt að fylgjast með stöðu pöntunarinnar á meðan hún er sótt, sem gerir upplifunina bæði skýra og einfalda.
Í móttökunni er einnig hægt að fylgjast með pöntuninni á ferð sinni í gegnum sjálfvirkt lagerkerfi á stórum skjá. Það gefur viðskiptavinum skemmtilega innsýn í hvernig pantanir eru afgreiddar og sýnir vel hversu skilvirkt ferlið er frá því að pöntunin er virkjuð þar til hún er tilbúin til afhendingar.

Við hjá Edico erum stolt af því að Edico Handheld sé hluti af þessu skilvirka afhendingarferli. Lausnin hjálpar starfsfólki að afgreiða pantanir á fljótlegan og öruggan hátt og styður við nútímalega og góða þjónustu við viðskiptavini.



