Smáralind: Garðurinn bætir pöntunarupplifunina
Jun 18
1 min read
Garðurinn hefur nú sett upp glæsilega pöntunarskjái víðsvegar um Smáralind til að bæta aðgengi og upplifun gesta. Skjáirnir gera viðskiptavinum kleift að panta á einfaldan og þægilegan hátt, hvar sem þeir eru staddir í verslunarmiðstöðinni.

Búnaðurinn er frá Edico, sem sá einnig um uppsetningu á lausninni. Útfærslan fellur vel að umhverfinu og styður við hraðari þjónustu, sérstaklega á álagstímum.



