top of page

Edico hlýtur viðurkenningu sem eitt af Fyrirmyndarfyrirtækjum VR

  • Writer: berglind
    berglind
  • May 15
  • 1 min read

Stéttarfélagið VR hefur nú birt lista yfir Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2025, þar sem fimmtán efstu fyrirtækin í hverjum stærðarflokki eru heiðruð fyrir framúrskarandi árangur í mannauðsstjórnun. Alls eru 45 fyrirtæki valin til útnefningarinnar, sem byggir á niðurstöðum ítarlegrar vinnustaðagreiningar þar sem starfsmenn meta meðal annars vinnuumhverfi, stjórnun, starfsanda og fleiri lykilþætti starfsins.

Berglind, Ómar, Grétar, Stefán og Daníel
Berglind, Ómar, Grétar, Stefán og Daníel

Edico ehf er eitt þeirra fyrirtækja sem hlotið hafa viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki 2025, og er það mikill heiður. Þessi viðurkenning er staðfesting á því að hjá Edico ehf er lögð áhersla á að byggja upp jákvæða vinnustaðamenningu, styðja við vellíðan starfsmanna og skapa aðstæður fyrir persónulegan og faglegan vöxt.

Mörg fyrirtæki á listanum hafa verið áberandi í efstu sætum ár eftir ár, óháð ytri aðstæðum. Það sýnir að öflug mannauðsstjórnun og sterkur innri kjarni eru lykilatriði í farsælum og sjálfbærum rekstri.


Edico ehf.

Höfðabakki 3

110 Reykjavík

kt. 610611-1760

​Sími 571 8500

sala hjá edico.is

hjalp hjá edico.is

Skrifstofutími

9-12 og 13-17 virka daga

  • LinkedIn
  • Grey Facebook Icon
  • Grey YouTube Icon
Hafðu samband

Takk fyrir að hafa samband.
V
ið svörum eins fljótt og auðið er.

bottom of page